Flýtilyklar
Sarah Morgan
Nýársósk Ítalans
Published
4. apríl 2011
Lýsing
Ég vil skilnað, ég vil skilnað, ég vil skilnað...Amy þuldi orðin í huganum á meðan leigubílstjórinn ók eftir þröngu sveitavegunum sem lágu að ströndinni í norðurhluta Cornwall. Snjórinn sem hafði fallið um nóttina hafði myndað hvíta blæju yfir trjám og runnum og nú glitraði þessi fallega blæja í geislum morgunsólarinnar. Dagurinn virtist ætla að verða fullkominn... fullkominn fyrir fólk sem var ekki í þann veginn að slíta hjónabandi sínu.