Flýtilyklar
Brauðmolar
Danica Winters
-
Reykur og aska
Hann horfði niður á Heather Sampson um leið og hann dró eldspýtustokk úr vasa sínum. Hann missti stokkinn úr höndum sér og eldspýtur dreifðust út um allt gólf eins og fyrirboði um eitthvað skelfilegt. Hann beygði sig niður og safnaði þeim aftur saman í stokkinn og gætti þess jafnframt að fara hljóðlega. Hann óttaðist að hún myndi rumska og standa hann að verki.
Augu hennar voru lokuð en munnur lítils háttar opinn eins og hún biði eftir kossi frá draumaprinsinum. Hún hefði átt að vita betur. Draumaprinsinn er ekki til. Einungis aumingjar og fáeinir menn eins og hann sem gerðu sitt besta til að fá réttlætinu framgengt.
En það var sorgleg staðreynd að ekkert réttlæti ríkir í hjónabandi, í það minnsta ekki í þeim hjónaböndum sem hann þekkti til.
Nei, hjónaband var ekkert annað en ein lygi á fætur annarri, vonbrigði hulin gervibrosi og síðan enn önnur lygi, endalaus hringrás sársauka.
Var þetta tilgangurinn? Til hvers var þetta allt saman?
Eftir því sem hann gat best séð snérist þetta allt um sjálfselsku og þá óraunsæju von að ef þau létu líta út eins og þau væru hamingjusöm, ef þeim tækist að þykjast á nógu sannfærandi hátt, þá myndu þau að lokum trúa því sjálf.
Hann var hingað kominn til að gera hana að píslarvætti. Hún myndi ekki skilja það sjálf en þetta var hans tækifæri til að sýna henni og umheiminum hvernig hjónaband hennar var í raun og veru, ekkert annað en reykur og aska. Eldur sem átti eftir að brenna út. En nú var stundin komin til að tendara bálið og gjöreyða glötuðu hjónabandi hennar.
Vítislogarnir myndu sjá til þess.
Hann gekk út úr svefnherberginu og niður stigann þar sem dásamleg bensínlyktin var alltumlykjandi. Hús Heather myndi brenna á svipstundu, ólíkt öllum hinum.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Óleyst morðmál
Tilfinningin sem hríslast hafði um líkama hans þegar hann fékk útrás fyrir reiði sína í garð líffræðilegs föður síns var ólýsanleg.
Það var sem rafstuð hríslaðist um allan líkama Rainier Fitzgerald og afleiðing þess var afar vel heppnað kjaftshögg. Eitt einasta kjaftshögg en sem kostaði hann ríflega þrjú ár ævinnar auk mörg hundruð þúsund króna sektar og svo að segja allan vinahópinn. Þær stundir komu að hann óskaði þess að hafa gert alvöru úr því að drepa bölvaðan drullusokkinn. Örlítið fastara högg eða nokkur högg til viðbótar og lífi þessa aumingja væri lokið. Rainier iðraðist þess síður en svo að hafa barið föður sinn… hann harmaði einungis að hafa ekki látið af því verða löngu fyrr.
Það ískraði í hjörum fangelsishliðsins þegar það opnaðist hægt og rólega. Rainier hafði kviðið þessum degi allt frá því hann var lokaður inni í þessu helvíti. Hann lygndi aftur augunum og dró djúpt andann í svölu, rykmettuðu andrúmsloftinu.
Eftir þriggja ára fangelsisvist var hann loks frjáls maður að nýju.
Þunnt snjólag á götunum og hreindýrshorn sem stóðu út úr glugga svartrar fólksbifreiðar á planinu fyrir utan fangelsið voru einu merkin um að jólahátíðin nálgaðist. Hornin voru svo fáránlega hallærisleg að hann skellti ósjálfrátt upp úr en hrökk við þegar hann heyrði ráma, framandi hljóðið af eigin hlátri.
Á miða sem límdur var á innanverða framrúðu bifreiðarinnar stóð að hún væri í eigu ríkisfangelsis Montanafylkis.
Rainier leit í kringum sig í von um að koma auga á Wyatt áEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Eldsvoði
Það var sama hvað Whitney Barstow reyndi að gleyma atburðinum þegar hún hafði næstum látið lífið í eldsvoðanum en hún gat það ekki. Minningin dofnaði ekki, var alltaf jafn ljóslifandi.
Reykur hafði fyllt lungun, eytt öllu súrefni og hún hafði fengið höfuðverk. Rammur reykurinn lagðist eins og hönd yfir vitin á
henni og því meir sem hún reyndi að draga andann, því þéttara varð takið. Hún hafði reynt að rífa þessa ósýnilegu hönd í burtu, hafði klórað sig, svo enn sáust dauf ör til merkis um örvæntinguna sem hafði gripið hana.
Hún mátti ekki loka augunum án þess að henni fyndist hún komin aftur í hlöðuna. Hurðin var lokuð og þegar neistinn læsti
sig í heyið var eins og sprengja hefði sprungið. Hún heyrði enn hvininn þegar eldtungurnar læstu sig í skraufþurran eldsmatinn.
Og hitinn. Þvílíkur hiti. Það hafði komið fyrir að hún vaknaði kaldsveitt upp af draumi þar sem hún var stödd í miðju eldhafinu.
Tár rann af hvarmi þar sem hún sat og horfði út að hlöðunni á Dunrovin-búgarðinum og minntist þeirra sem höfðu farist í brunanum. Það kæmi enginn í staðinn fyrir Feyki, svarta gæðinginn hennar. Hún mundi ennþá eftir töðuilminum af andardrætti hans og gangmýktinni þar sem hún sat í hnakknum. Lífið yrði aldreiEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Þjóðgarðurinn
Sjö. Flestir héldu að það væri happatala. Hann hafði meira að segja haldið það sjálfur. Þetta átti að vera sjöunda ferðin
hans, síðasta verkefnið á önninni, síðasta hreingerningin áður en hann gæti farið til Mexíkó að sleikja sólskinið allan veturinn. Senjorítur, sjóskíði og bjór... allt sem þurfti til að verða hamingjusamur.
En nú starði hann á rándýrið og var kominn á þá skoðun að sjö væri óhappatala.
Grábjörninn hoppaði um á framfótunum eins og hundur sem langaði til að leika sér, en hann var nógu vel að sér um
birni til að vita að þessum var ekki leikur í hug. Nei, þessi hegðun var ógnandi.
Hann gekk eitt skref aftur á bak án þess að hafa augun af bangsa. Svört augu dýrsins virtu hann fyrir sér og lögðu á
hann mat.
Hann hefði gefið aleiguna til að vera þriggja metra hár á þessu augnabliki. Ekki í fyrsta sinn.
–Góður bangsi, sagði hann og rétti hendurnar upp. –Góður bangsi. Svo leit hann um öxl, en maðurinn sem hannEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Í tæka tíð
Waylon Fitzgerald trúði því statt og stöðugt að allir menn væru eins þegar um langanir væri að ræða. Fernt þráði fólk
öðru fremur: þokkalegt kynlíf, þægilega fjárhagsstöðu, hamingju og endurgoldna ást. Til allrar lukku hafði hann aldrei verið eins og fólk var flest. Draumar hans voru miklu stærri.
Hann vildi eignast allt þetta og ótal margt fleira. Hann langaði til að ferðast um heiminn, hjálpa fólki í neyð og láta drauma sína rætast. Þokkalegt var honum ekki nóg.
Það heyrðust brak og brestir í heyrnartólum þyrlunnar.
–Hvar viltu að ég lendi?
Flugstjórinn benti út um gluggann á Black Hawk-þyrlunni þegar þeir flugu yfir tjörnina á túninu þar sem mamma hans hafði hestana venjulega á þessum árstíma.
Fólkið hans yrði ekki ánægt með að hann skyldi koma með þyrlu, en vegna hvarfs fyrrverandi konu sinnar hafði hann orðið að taka næsta flug. Svo heppilega vildi til að vinur hans var að flytja frá einni herstöð til annarrar og bauð honum far.
Waylon hafði alltaf notið þess að ferðast í þyrlu. Hann leit út um gluggann og virti fyrir sér Dunrovin-búið og gestabústaðina í kringum stóra íbúðarhúsið.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Námuréttindin
Allt var mælt í tíma í Montana, ekki í eknum kílómetrum eða gæðum eða fórn. Það tók til dæmis ekki nema tvær klukkustundir að aka frá Missoula til Butte. Og kærastinn hennar?
Tæpir þrír mánuðir. Hún hafði verið 16 ára, of ung til að sambandið gæti kallast alvarlegt en nógu gömul til að verða ófrísk.
Þá hafði sambandinu lokið á innan við 10 sekúndum og hún var skilin eftir með fallega dóttur og fölnaða drauma.
Það voru 13 ár síðan. 13 ár af hræðslu, auðmýkt og gleði.
Nætur sem var eytt í að róa dótturina þegar hún fékk í eyrun og dagar sem var eytt í baráttu til að komast þangað sem hún var...
lögreglufulltrúi í smábæ í fastri vinnu og með stöðugar tekjur.
Hún var sú eina sem var nógu sterk til að sjá fyrir mömmu sinni og dóttur. Þær þurftu á henni að halda.
Draumar voru fyrir þá sem höfðu efni á þeim og það hefði Blake West aldrei.
Gamla talstöðin í bílnum vaknaði til lífsins með braki þegar rödd konunnar hjá neyðarlínunni fyllti bílinn. –Blake, mamma
þín hringdi, sagði að það væri vesen heima hjá þér.
Hún svaraði, –ekki hika við að minna mömmu á að neyðarlínunúmerið er bara fyrir neyðartilvik.
–Þú skalt segja mömmu þinni það, sagði konan og hló.
Blake hristi höfuðið við tilhugsunina um að segja mömmu sinni, írskri konu sem var gamaldags í sér, að hún mætti ekki gera eitthvað. Það gengi betur að sannfæra páfann um að gangaaf kaþólskri trú.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Smábæjarglæpir
Ekkert gat gert kvenmann jafn hratt og jafn illa brjálaðan og karlmaður var fær um að gera. Sama máli gilti um hryssur og
stóðhesta. Sönnunar fyrir því þurfti ekki að leita lengra en í höltu hryssunni sem var ástæða þess að Bianca var kölluð á
Dunrovin búgarðinn í smábænum Mystery í Montanafylki.
Skjótta hryssan bakkaði afturendanum út í horn á stíunni líkt og eðlisávísunin segði henni að nauðsynlegt væri að verjast en úti í náttúrunni hefði stóðhross hiklaust nýtt sér meiðsl hennar og veikleika til að drepa hana.
Bianca fussaði við tilhugsunina um hve lík dýr og fólk í raun voru. Berstrípuð og nafnlaus, án tengslanets, félagslegs baklands og fjármuna var manneskjan ekkert annað en dýr.
Samkvæmt frú Fitz hafði skjótta hryssan verið í látum og lent í slagsmálum við aðra hryssu. Hryssunum tveimur hafði fram til þessa lynt vel saman innan valdapíramída hópsins en það tók snöggum breytingum þegar grábleiki stóðhesturinn nálgaðist þær um of. Þá höfðu hryssurnar rokið saman og sem endað hafði með því að skjótta hryssan slasaðist illa á fæti. Bianca var ekki viss um hvort leggur hryssunnar var brotinn eða einungis sprunginn en það gæti hún ekki sagt til um án þess að þreifa á honum.
−Sæl, vinan, sagði Bianca í gæluróm um leið og hún opnaðistíuna varfærnislega og fikraði sig síðan rólega nær hryssunni.
Hryssan fnæsti hátt og leit ekki augnablik af Biöncu. Skelfing skein úr augum hennar og óreglulegur andardrátturinn benti til
þess að hún væri bæði hrædd og kvalin. Vinstri leggur hennarEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr.