Flýtilyklar
Jennifer Greene
Maður leyndardómanna
Published
5. ágúst 2011
Lýsing
Ein húsalengd í viðbót. Sophie Campbell þurfti ekki að fara lengra. Jæja þá, kannski var hellirigning og hún með hliðartösku fulla af þungum bókum og troðfullan innkaupapoka. Kannski hafði hún aldrei getað ímyndað sér að októberkvöld í Virginíu væru svona köld og hún var rennandi blaut og fjandakornið, henni var illt í fótunum. En samt... hún ætti að komast síðasta spölinn, var það ekki?