Þú vinnur með eldri sjúklingum. Er það ekki rétt, ungfrú Suarez? Isobel fannst sem hún hefði verið skoðuð í smásjá síðustu fimm mínúturnar. Neil Kane gat látið hjarta hennar slá örar með því einu að mæta henni á ganginum. Það var ekki staða hans sem rannsakanda fyrir skrifstofu saksóknara í Massachusetts sem hafði áhrifin á hana.
Dyrnar að bókasafninu á McCord-fjölskyldusetrinu opnuðust skyndilega og glæsileg kona með sítt, liðað, hunangsljóst hár æddi inn... Gabriella McCord. Andlit hennar og líkami höfðu prýtt forsíður allra tískutímarita heimsins... og nokkur slúðurtímaritanna einnig. Rafael Balthazar kipptist aðeins til, þó svo að hann myndi aldrei viðurkenna það.