Flýtilyklar
Brauðmolar
Kathleen Long
-
Fortíðardraugar
Sagan sagði að Jack Caldwell hefði ekki stigið fæti sínum á Majestic útsýnisstaðinn síðustu fimm árin. Ekki frá því atvikið átti sér stað en það var lýsingin sem Framleiðandinn notaði gjarnan um hvarf Roberts Caldwell. Framleiðandinn sá ákveðna kaldhæðni fólgna í þeirri staðreynd að loforð um ný sönnunargögn í síðasta máli Jack ráku hann aftur á þennan stað sem ekki hafði leitt nein sönnunargögn í ljós í fyrra máli hans... máli sem snerist um hvarf bróður hans.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Gamlar syndir gleymast ei
Nicole Christides teygði sig í farsímann sinn þegar hann hringdi og leit á skjáinn til að sjá hver væri að hringja. Systir hennar, Lily. Hún brosti. –Leyfðu mér að skilja þetta rétt, mamma og pabbi fara í siglingu og ég fæ að vera fórnarlamb vikulega sektarkenndarsímtalsins þíns í stað þeirra.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Eina vitnið
Kerri Nelson heyrði glasið, sem hún missti, aldrei brotna í vaskinum. Röð sprenginga bergmálaði á rólegum eftirmiðdegi í ágúst og viskustykkið rann úr höndum hennar og hjartað tók aukaslag í brjóstinu. Hún hugsaði í flýti um alla möguleikana... ekki hvað hafði komið fyrir heldur hvar sonurinn gæti verið. Hvar var Thomas? Hann hafði farið með hjólabrettið með sér þegar hann fór fyrir klukkutíma síðan.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Í kapphlaupi við tímann
Jordan henti fötum til skiptanna ofan í ódýra tösku sem hún hafði keypt á markaðnum. Hún leit á mjúku leðurtöskuna sem móðir hennar hafði gefið henni í útskriftargjöf og eftirsjá fór um hana við að skilja hana eftir. Hún gat ekki annað. Það yrði ekki eins augljóst að hún væri að fara, meiri líkur á að hún kæmist upp með áætlun sína.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Enginn vafi
Sophie Markham stóð í miðjum danssalnum á Hilton og fékk leiftursýn inn í fortíðina. Það var eins og að sjá afturgöngu þegar hún horfði á barnið... hún var alveg eins og systir hennar þegar hún var lítil... mörgum árum áður en hún fórst í skelfilegum eldsvoða. Að reykja í rúminu. Sophie deplaði augum og hristi höfuðið. Þvílík sóum. Hún virti barnið aftur fyrir sér og fylgdist með því hvernig hún talaði við móður sína, sem var sú sem skipulagði söfnunarátakið.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr.