Flýtilyklar
Brauðmolar
Leyndardómar Winchester
-
Grafin Leyndarmál
Winchester, Tennessee Þriðjudagur 19. október kl. 8:30 Þrítug. Þrítug! Það hljómaði eins og hún væri gömul. Hún leit ellilega út. Naomi Honea starði á spegilmynd sína og gretti sig þegar hún sá að hún var að fá hrukkur við augnkrókana. –Of mikið í sólinni án þess að vera með hatt, tautaði hún. Hún vissi betur. Þetta var bölvun ljósa húðlitarins. Það var rétt en hún gat lítið gert annað en verið úti. Hún var orðinn bóndi, eftir allt saman, eins og pabbi hennar. Hafði verið það undanfarið ár. Hún tók úfið rautt hárið saman í tagl. Hún var líka með sigg í lófunum eins og hann. Naomi horfði rannsakandi í bláu augun sem hún hafði fengið frá mömmu sinni. Augun, hárið og fölu freknóttu húðina hafði hún fengið í arf frá konu sem kenndi henni að vera sterk og þrjósk og fullkomlega sjálfstæð. Hún andvarpaði og sneri sér frá speglinum. Í dag átti hún afmæli. Þetta var fyrsti afmælisdagurinn sem hún hafði eytt algerlega ein. Þetta var málið með að vera einbirni. Þegar foreldrarnir voru látnir var enginn eftir. Tja, reyndar var Donnie, móðurbróðir hennar á lífi en hann var ekki beinlínis þekktur fyrir að halda sambandi. Hann var sjötugur og leit á sig sem kvennagull. Hún gat
Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Týndur
NÚNA
Föstudagur 6. mars
Winchester, Tennessee
Halle Lane hlustaði á blaðamanninn, vinnufélaga sinn, láta móðan mása um væntanlega viðburði í Winchester sem hann hafði hugsað sér að fjalla um. Það var næstum því hver einasti viðburður sem í vændum var næsta mánuðinn.
Hún ætti í raun ekki að kvarta. Halle var ný. Hún hafði aðeins verið í þessu starfi í þrjá mánuði, en þekkti Winchester
alveg jafn vel og Roger Hawkins. Hún gat ekki með neinu móti kallað hann Rog. Hann var ábyggilega orðinn sjötugur
og hafði fjallað um fundi og mannfagnaði í Winchester í um það bil hálfa öld.
Hvernig gat hún búist við því að fá fyrstu fréttir um nokkurn skapaðan hlut í Winchester? Hún var frá Nashville og fallandi stjarna á sviði rannsóknarblaðamennsku. Hawkins sá um félagslífið og dánartilkynningarnar. Yfirmaður hennar
og eigandi blaðsins, Audrey Anderson-Tanner, tók yfirleitt að sér allar stórfréttirnar. Eini möguleikinn á því að fá að kljást við eitthvað bitastæðara en slagsmál á krám og smáinnbrot fólst í því að Audrey var barnshafandi. Hún átti von á sínu fyrsta barni, tæplega þrjátíu og átta ára gömul.
Halle hafði langað til að stökkva hæð sína í loft upp þegar hún heyrði tíðindin. Hún samgladdist vitanlega hjónunum
Audrey og Colt Tanner, sýslulögreglustjóra, en aðallega var hún þó kát yfir þeim möguleika að fá að vinna krassandi frétt einhvern tíma áður en áratugurinn tæki enda.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Glæpakvendið
Fjórir dagar til réttarhalda
Sunnudagur 2. febrúar
Winchester, Tennessee
Það var farið að kólna.
Veðurfræðingurinn varaði við snjókomu á mánudaginn.
Hitinn lækkaði hægt og sígandi. Henni var alveg sama. Hún þurfti ekki að gera neitt, nema vera þarna.
Í fjóra daga.
Eftir fjóra daga rynni dagurinn upp.
Ef hún lifði svo lengi.
Hún nam staðar, sneri sér hægt í hring og virti fyrir sér þétt skóglendið í kring. Hvergi var neitt að sjá nema tré og
þennan eina stíg. Hnígandi sólin sendi geisla sína milli nakinna greinanna.
Á þessum stað hafði hún dvalist síðustu daga sumars og síðan allt haustið. Nú voru vetrarlok í augsýn. Allan þennan
tíma hafði hún aðeins séð eina mannveru.
Það var best, sögðu þau. Henni til verndar.
Það var satt. En hún hafði aldrei á ævinni verið jafn einmana. Að minnsta ekki síðan pabbi hennar dó.
Fyrsta árið eftir lát hans hafði hún smátt og smátt vanist
því að vera tuttugu og fjögurra ára gamall munaðarleysingi.
Hún átti engin systkini og enga ættingja. Hún var aleinEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Hættuslóð
Winchester í Tennessee
Föstudagur 9. ágúst
Sadie Buchanan hafði aldrei áður komið til Winchester.
Hún hafði komist næst því er hún skrapp til Tullahoma og það var fyrir löngu, þegar hún fékk fyrsta verkefnið á
Nashville-svæðinu. Hún hafði þurft að sitja ráðstefnu íArnold-herstöðinni í einn dag.
Það var óvenjulegt að alríkislögregluþjónar enduðu á þessu svæði. Vandræði af því tagi sem kröfðust þátttöku
hennar áttu sér sjaldan stað í smábæjum. Flest verkefnin voru í stórborgum, í eyðimörkinni eða uppi í fjöllum.
En í hvert sinn sem alríkislögregluþjónn var í vanda staddur kom hún honum til hjálpar.
Hún lagði bílnum við bækistöðvar lögreglustjórans í Franklinsýslu.
Þegar hún hóf störf hafði það ekki beinlínis verið á stefnuskránni að bjarga löggæslumönnum úr háskalegum aðstæðum, en eftir tveggja ára virka þátttöku í löggæslunni hafði hún tekið þátt í verkefni sem olli því að það varð hennar sérsvið.
Verkefnið hafði farið hátt og athygli ráðamanna beinst að alríkislögregluþjóninum sem sinnti því. Meðan á björgunarleiðangrinum stóð uppgötvaði hún hæfileika sinn til aðEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Ofstæki
Morðingi.
Cecelia Winters starði á þetta ljóta orð sem hafði verið párað með rauðri málningu á hvítu útidyrahurðina. Hún leit um öxl á leigubílinn sem lagður var af stað að nýju. Svo stundi hún og lagði bakpokann frá sér á pallinn.
Levi, bróðir hennar, hafði átt að sækja hana þegar hún var látin laus úr fangelsi. Hann hafði greinilega tafist.
Hún tyllti sér á tá en náði samt ekki upp á sylluna fyrir ofan dyrnar. Þá litaðist hún um á pallinum og komst að þeirri niðurstöðu að stóll myndi duga ágætlega. Stólarnir tveir og rólan höfðu verið á veröndinni hjá ömmu hennar frá því að Cece mundi eftir sér. Fléttaða blómakarfan milli stólanna var tóm og þarfnaðist málningar. Í kringum hana mátti sjá örlitlar, hvítar málningarflögur.
–Að hruni komin eins og allt annað hér um slóðir, muldraði hún, dró stólinn að dyrunum og prílaði upp á hann.
Lykillinn lá á rykföllnu syllunni eins og ævinlega. Það gengi kraftaverki næst ef enginn hefði brotist inn, stolið öllu steini
léttara og skemmt allt sem hægt var að skemma. En Cece, eins og hún var jafnan kölluð, kvartaði ekki. Amma hennar hafði arfleitt hana að þessu gamla húsi ásamt fjögurra hektara landi í kring. Veggirnir stóðu enn og þakið virtist vera í þokkalegu standi. Ef fleira var heillegt teldist það bónus. Cece var ákaflega fegin að hafa einhvern stað til að dveljast á. Fjölskylda hennar hafði snúið við henni baki fyrir löngu.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Sannleikurinn
Sunnudagur 24. mars
Sasha Lenoir reyndi að halda brosinu meðan æskuvinkona hennar, Audrey Anderson, fylgdi síðustu gestunum til dyra.
Erfidrykkjan að lokinni útför ömmu hennar var gömul hefð og Söshu hafði tekist að komast í gegnum hana án þess að fara að gráta og verða sér til skammar. En eftir því sem á samkvæmið leið höfðu taugarnar þanist og yfirvegunin dvínað.
Hún yrði að loka sig af í hljóðu herbergi í nokkrar klukkustundir meðan hún hlóð batteríin, jafnaði sig og setti tilfinningarnar í geymslu á nýjan leik. Hún hafði eytt mörgum árum í að þróa hæfileikann til að stjórna viðbrögðum sínum og tilfinningum, enda menntuð í hættustjórnun. Múrinn hennar var að jafnaði rammger og ókleifur.
En þessi dagur hafði verið öðruvísi. Persónulegur. Eini eftirlifandi ástvinur hennar, að dótturinni frátalinni, var dáinn
og grafinn. Sasha gat ekki lengur spurt neinn út í ætt sína og uppruna. Enginn gat lengur minnt hana á allt sem hún hafði sigrast á, það sem hún hafði afrekað eða hvaða markmiðum hún gæti enn náð, þrátt fyrir fortíðina.
Lífið yrði aldrei samt á ný.
Viola Simmons hafði verið henni miklu meira en amma.
Hún hafði verið henni móðir, faðir, systir, besta vinkonaEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Sjálfsvörn
Franklin sýsla, Tennessee
Mánudagurinn 25. febrúar, kl. 21:10
Rauð og blá ljósin blikkuðu í náttmyrkrinu.
Audrey Andersen steig út úr bílnum og á malarveginn. Hún yggldi sig og óskaði þess að hún hefði haft tíma til að skipta
um skó en þegar hún heyrði af skotárás í lögregluradarnum sínum var tími bara munaður sem hún gat ekki leyft sér.
Bíll lögreglustjórans var þegar kominn á staðinn ásamt tveimur lögreglumótorhjólum og bíl dánardómstjórans en það
var ekki að sjá að það væru aðrir fréttamenn komnir á staðinn.
Ekki einu sinni hrokafulli blaðamaðurinn frá Tullahoma Telegraph sem var yfirleitt kominn á staðinn á undan Audrey.
Kannski átti Audrey einhverja vini hjá löggunni.
Aftur á móti þá var Audrey með sína eigin heimildamenn.
Hún sótti töskuna sína í bílinn. Lögreglustjórinn var ennþá með samviskubit yfir því að hafa haldið framhjá henni í gaggó þannig að hann var hennar eigin heimildamaður.
Audrey var ekki yfir það hafinn að nýta sér þessa sektarkennd.
Hún sá fyrir sér að hún gæti minnst á það við manninn sem hún ætlaði að giftast að hann skuldaði henni eins og einn eða tvo eða hundrað greiða.
Hún fékk hroll þegar hún fann næturkuldann hríslast um sig.
Jafnvel þó að mars væri handan við hornið og það voru mörg blóm farin að blómstra og gefa til kynna að vorið væri á næstaEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr.