Flýtilyklar
Brauðmolar
Meredith Webber
-
Faðir fyrir slysni
–Þú gætir þegar verið orðinn faðir.
Max Winthrop sat sem lamaður í sætinu og starði vantrúaður á vin sinn, sem einnig var læknir.
Fyrir hálftíma hafði hann staðið fyrir utan tæknifrjóvgunarstofuna og reynt að átta sig á líðan sinni.
Var hann óviss?
Kvíðinn?
Áfram með þig, hafði hann sagt sjálfum sér. Þú hefur tekið ákvörðunina, farðu nú inn og hittu Pete.
En þarna stóð hann og hugurinn þaut sjö ár aftur í tímann...
Fyrir sjö árum hafði hann verið ákveðinn í að sigrast á nýgreindu krabbameini og hafði skilið eftir hluta af sjálfum sér þarna... innlögn til framtíðarinnar.
Þá hafði það verið fyrsta skrefið í jákvæðu viðbrögðunum hans, annað skrefið hafði verið að byrja á stífri meðferð.
Þriðja skrefið hafði verið að ljúka meðferð og fara beint í fjórða skrefið, að klífa Everest-fjall.
Það hafði ekki verið slæm áætlun fyrir mann á miðjum þrítugsaldri sem hafði skyndilega komist að því að hann var með illkynja eitlaæxli. Þáverandi unnusta hans hafði verið efins um fjórða skrefið í áætluninni en hafði þó samþykkt að hann þyrfti sérstakt markmið.
Hann grunaði að hún hefði frekar viljað giftast, þótt hún hefði aldrei nefnt það.
Nú, tveimur unnustum og miklum breytingum síðar, hafði hann ákveðið að kominn væri tími til að láta eyðileggja frosna sæðið.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK870 kr. -
Krefjandi verkefni
Hann hafði ekki búist við að það yrði svona skrýtið, að
ganga inn á bráðamóttöku Willowby-sjúkrahússins.
Þangað hafði hann komið nógu oft sem barn... handleggsbrot, snúinn ökkli og eftirminnileg heimsókn vegna
lungna bólgu eftir að hafa lent ofan í skurði. Það hafði
verið Bill að kenna. Bill hafði grátið af því að kötturinn
hennar datt niður í brunninn... Bill að haga sér stelpulega!
Whillimina Florence de Groote... vinkona hans, Bill.
Móðir Bill hafði loks eignast dóttur eftir sex syni.
Henni hafði fundist nafnið vera fallegt og kvenlegt, en
strax og hún lærði að tala hafði Bill ákveðið að hún væri
ein af strákunum og haldið því fram að hún héti Bill.
Nafnið hafði haldist við hana.
Hann var sokkinn í fortíðina og hrökk í kút þegar
konan sem hafði mætt honum við dyrnar... Lesley?...
talaði.Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr.