Veikindaleyfi? æpti Rob Klassen, trúði því ekki sem hann heyrði ritstjóra World Week, alþjóðlega tímaritsins sem fjallaði um það sem efst var á baugi og sem hann hafði unnið hjá sem fréttaljósmyndari í tólf ár, segja. –Ég er ekki veikur! Gary Wallanger tók af sér gleraugun og fleygði þeim á skrifborðið sem var þakið próförkum frá Rob sem sýndu skærur í litlum bæ nálægt landamærum Ras Ajdir milli Túnis og Líbíu.