Þetta var kvöld elskenda, dimmt og heitt, með silfruðu tunglskini og kyrrð sem bauð upp á freistingar. En Katerina Whitcomb-Salgar var ekki með manninum sem hún hafði sagst elska og ætla að giftast. Hún hafði farið frá honum, hann var með aðra konu í örmum sínum og þar með var sú vissa úr sögunni að einn daginn yrði hún frú Tate McCord.