Flýtilyklar
Brauðmolar
ÓLEYST MORÐMÁL
-
Ástaræði
Óvenjulegt orðbragð hennar í réttarsal hafði ekki einungis stefnt fyrirfram unnu máli í tvísýnu heldur fimm ára saksóknaraferli hennar líka. Dómarinn hafði hótað að dæma hana fyrir lítilsvirðingu við réttinn og yfirmaður hennar hótað að víkja henni frá störfum um tíma ef hún léti ekki lítið fyrir sér fara í nokkra daga.
–Þú ert þreytt, hafði hann sagt og það hafði vottað fyrir samúð í röddinni. –Álagið á þessari skrifstofu sligar okkur fyrr eða síðar og þú gerir sjálfri þér engan greiða með því að vinna myrkranna á milli. Hvað er langt síðan þú hefur tekið þér frídag, hvað þá almennilegt leyfi?
Farðu nú burt áður en ég neyðist til að grípa til róttækra aðgerða.
Ava hafði drattast heim. Hún hafði ætlað að drekka og bölva það sem eftir var dags. En móðir hennar hafði alltaf sagt að iðjuleysi væri versti óvinur hennar, jafnvel verri en ýkt viðbrögð, hneykslun og sjálfseyðilegging.
Ava vissi að það myndi ekki stoða neitt að liggja í sjálfsvorkunn heima hjá sér í heila viku. Þess vegna hafði hún rótað í ruslinu uns hún fann boðskortið og svarað því á síðasta augnabliki. Loks hafði hún pakkað ofan í tösku og farið á flugvöllinn þennan sama dag áður en hún fengi tóm til að skipta um skoðun.
Maðurinn með spjaldið brosti og tók upp töskuna hennar. –Er þetta allt og sumt? Bara ein taska?
–Já. Ég heiti Ava.
–Noah Pickett.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Smábæjarmorðin
Dagurinn hafði verið ósköp venjulegur og það gerði símtalið enn furðulegra en ella. Jack King hafði reyndar ekki verið í góðu skapi áður en það barst þar sem hann hafði verið innilokaðar á skrifstofunni frá því snemma um morguninn. Í hans huga var allt betra en að hanga við skrifborðið allan liðlangan daginn.
Síðustu fimm árin hafði hann unnið hjá Blackthorn umboðsskrifstofunni sem var mikilsvirt ráðgjafar og öryggisfyrirtæki
sem hafði höfuðstöðvar í Houston í Texasfylki. Deildin sem Jack starfaði við gekk gjarnan undir heitinu Svarta vaktin en undir hana heyrðu ríkis- og sveitastjórnamál, lögregludeildir þar með taldar. Hans sérfræðiþekking lá í afhjúpun spillingar innan þessara embætta í stærri jafnt sem smærri borgum og bæjum landsins.
Við afhjúpun mögulegrar spillingar byrjaði hann yfirleitt efst og vann sig niður metorðastiga viðkomandi embættis. Breitt bak þurfti til að sinna þessu starfi sem var ekki fyrir neina aukvisa.
Sérstaklega þegar lögregluembættin áttu í hlut en lögreglumenn voru í eðli sínu ríkjandi persónuleikar og kunnu að fara í kringum hlutina. Jack naut þó áskorananna sem starfið hafði upp á að bjóða og það hafði auk þess kennt honum að hafa varann á sér í umgengni við annað fólk.
Þennan tiltekna morgunn hafði hann mætt í höfuðstöðvarnar í þeirri trú að undirbúningsfundur fyrir næsta verkefni stæði fyrir dyrum. Þess í stað hafði heill haugur af pappírsvinnu og óvægið augnaráð yfirmannsins haldið honum hlekkjuðum við skrifborðið allan liðlangan daginn. Dag sem liðið hafði með eindæmum hægt.
Klukkan var langt gengin í sex þegar hann gekk loksins frá síðustu skýrslunni, stökk upp af stólnum, teygði duglega úr sér, arkaði fram og óskaði deildarstjóranum góðrar helgar á leið sinni í gegnum opna skrifstofurýmið. Hann var rétt stiginn út úrEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr.