Flýtilyklar
Ást og afbrot
Laundóttir hermannsins
Published
3. febrúar 2012
Lýsing
Jagger Holtz hnipraði sig saman í myrkrinu þegar þyrlan þaut í burtu, líklega til að halda áfram að fylgjast með umferðarteppum á hraðbrautunum á jörðu niðri. Þeir höfðu sveimað yfir AbaCo byggingunni í tuttugu og átta sekúndur. Rétt nógu lengi til að hann gæti rennt sér á línu niður á þak tuttugu hæða háa stál- og glerturnsins, en vonandi ekki nógu lengi til að setja öflugt öryggiskerfi AbaCo Inc., eitt af stærstu... og vafasömustu... skipafélögum veraldar, í gang.