Flýtilyklar
Ást og óvissa
Leyndarmál í fjöllunum
Published
3. febrúar 2012
Lýsing
Fugl flaug upp úr runna með vængjaslætti og látum. Eve Bailey stöðvaði hestinn sinn, með hjartað
uppi í hálsi, og áttaði sig nú fyrst á því hve langt frá búgarðinum hún var komin. Vindurinn hafði magnast og þrumuský voru á vesturhimninum. Hún fann regnlykt í loftinu. Hún hafði riðið inn í óbyggðirnar, hafði farið af sléttunni með sínu háa grasi til þess að ríða innan um runna og kaktusa.