Madeline Sullivan læddist í tunglsljósinu út úr risíbúðinni sinni. Hún fór gætilega niður stigann og yfir gólfið sem var svo gamalt að það brakaði jafnvel undan rykinu sem féll á það en þó náði hún ekki að vekja gestina á gistikránni. Bíllinn hennar fór í gang í fyrstu tilraun og hún mætti engum bíl fyrr en hún kom að fyrsta aldingarðinum vestan megin í bænum.