Flýtilyklar
Brauðmolar
Delores Fossen
-
Morðæði
Hún átti sér líka minningar um og sá fyrir sér annað sem hafði gerst á þessum tveimur dögum.
Það yrði engin hjálp í að rifja það upp núna.
Hún varð að komast að bílnum sínum svo hún gæti ekið að gistiheimilinu í útjaðri bæjarins og komist að því hvers vegna þessi tilfinning um að eitthvað væri að vildi ekki hverfa.
Hún hélt áfram göngunni frá litla apótekinu að bílnum sem hún hafði lagt ofar í götunni.
Það hafði verið bjart þegar hún fór inn í apótekið fyrir 20 mínútum síðan til að bíða eftir lyfjunum sínum en núna var stormur á leiðinni og orðið dimmt og gangstéttirnar mannlausar.
Þarna voru mörg húsasund og skuggar, nóg til að taugarnar tækju viðbragð.
Rachel blótaði sjálfri sér í hljóði fyrir að hafa ekki lagt beint fyrir framan apótekið frekar en að leggja framan við kjörbúðina sem hún hafði farið í og verslað áður en hún fór í apótekið. Nú var kjörbúðin lokuð og allt annað í litla bænum Silver Creek virtist lokað líka.
Hún hafði valið þennan bæ af því að hann minnti hana að mörgu leyti á heimabæinn McCall Canyon en þar hafði margt slæmt gerst og gæti líka gerst hérna.
Um leið og hún sá bílinn ýtti hún á takkann á fjarstýringunni. Bremsuljósin blikkuðu, sýndu að dyrnar voru nú ólæstar, en um leið lýsti elding upp himininn. Nokkrum sekúndum síðar kom þruman, hávær og djúp, og kannski var það vegna þrumunnar sem hún heyrði ekki fótatakið.
Ekki fyrr en það var of seint.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Hefnigirni
Warren pabbi hans var enn á lífi en ástandið var tvísýnt. Court vildi ekki trúa því að hann myndi ekki lifa þetta af og ekki bara það heldur að hann myndi ekki hjálpa Court við að koma Raynu í fangelsi. Í þetta skipti kæmist hún ekki
upp með morð.
Court stoppaði framan við húsið hennar sem var ekki beinlínis í alfaraleið. Það átti að vísu við um mörg hús nálægt McCall-gljúfrinu.
Forfeður hans höfðu verið fyrstu íbúarnir í bænum fyrir rúmlega öld síðan og hann var nákvæmlega eins og þeir höfðu hugsað sér það, bændasamfélag.
Þeir höfðu örugglega ekki reiknað með að það yrði morðingi meðal íbúanna.
Court leit á hendurnar á sér. Stöðugar. Það var gott því honum leið alls ekki þannig. Reiðin kraumaði og hann varð að gæta þess að hafa nógu góða stjórn á sér til að geta handtekið Raynu. Hann ætlaði ekki að beita ofbeldi en myndi sennilega segja eitthvað sem hann ætti ekki að segja.
Bíllinn hennar stóð í innkeyrslunni sem þýddi sennilega að hún væri heima. Gott, hann hafði ekki langað til að fara að leita að henni Það kom samt svolítið á óvart að hún hafði ekki lagt á flótta. Sennilega myndi hún segja að hún væri
saklaus, að hún hefði ekki komið nálægt því að skjóta pabba hans í brjóstkassann, en það var staðreynd að hún hafði ástæðu til að drepa einhvern af McCall-ættinni.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Lokauppgjör
Sólin var að setjast en Jameson hélt áfram í rökkrinu og ringulreiðinni og svipaðist um eftir Gabriel bróður sínum sem var lögreglustjórinn.
Gabriel var ekki sá hávaxnasti á staðnum en hann var valdsmannslegur sem gerði það að verkum að það var auðvelt að finna hann. Jameson gekk til hans.
–Hversu slæmt er þetta? spurði Jameson.
Hann vissi auðvitað svarið að einhverju leyti.
Þetta hlaut að vera slæmt fyrst Gabriel hafði hringt í Texaslögregluna til að biðja um aðstoð.
Hann gerði það einungis ef verkefnið var of stórt fyrir hann og lögeglumennina sem voru undir hans stjórn en það gerðist ekki oft í litla bænum Blue River sem var heimabær þeirra.
–Við erum með tvö lík. Gabriel nikkaði í áttina að þeim skammt frá.
Tveir karlmenn lágu á túninu eins og þeir hefðu fallið þar. Svartur jeppi stóð á veginum skammt frá þeim, bílhurðirnar voru opnar og vélin enn í gangi.
Blóðið var á milli jeppans og mannanna svo það hafði sennilega verið skotið á þá í bílnum eða við hann og þeir síðan lagt af stað út á túnið, kannski til að flýja undan árásarmanninum eða elta þann sem skaut á þá. Svo höfðu þeir annað
hvort látist af sárum sínum eða verið skotnir aftur og þá til bana.
Jameson sneri sér aftur að bróður sínum.
–Hefur þú einhverja hugmynd um við hvað við erum að fást? Eiturlyfjaviðskipti sem enduðu illa?Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Saman á ný
Cameron Doran lögreglumaður var viss um að einhver væri að fylgjast með honum.
Hann lagði höndina yfir byssuna í hulstrinu við mittið og vonaði að ónotatilfinningin sem læddist niður hrygginn væri ekki rétt, vonaði að hann hefði líka rangt fyrir sér með það að einhver fylgdist með honum.
Hann vissi samt að svo var ekki.
Hann hafði verið í lögreglunni í 11 ár og það hafði bjargað honum einu sinni eða tvisvar að veita þessari tilfinningu athygli.
Hann var tilbúinn að draga byssuna upp og leit í kringum sig í bakgarðinum, sem var reyndar pínulítill. Húsið var á landareign búgarðsins Blue River og þarna voru stígar og slóðar sem hægt var að nota til að komast að húsinu hans.
Til dæmis gæti morðingi notað þá.
Þið deyið öll fljótlega.
Þetta stóð í nýjasta hótunarbréfinu sem Cameron hafði fengið fyrir tveimur dögum síðan.
Ekki beinlínis orð sem mann langaði til að lesa þegar maður opnaði póstinn sinn en hann var búinn að fá svo mörg að þau höfðu ekki sömu áhrif tilfinningalega og það fyrsta, sem hann fékk fyrir nokkrum mánuðum, hafði haft. Hann ætlaði samt
ekki að hunsa það.
Cameron horfði aftur í kringum sig og reyndi að sjá inn á milli trjánna en sá engan svo hann lauk við morgunkaffið og fór inn. Alla jafna hefði hann farið inn í barnaherbergið til að kveðja Isaac frænda sinn áður en hann fór í vinnuna, á lögreglustöðinni í Blue River, en núna gekk hann að glugganum yfir vaskinum og horfði út.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Skotmark morðingja
Theo Canton óskaði þess að það væri til betri aðferð til að stöðva morðingja, hvað sem var annað en að koma hingað á Beckettbúgarðinn til að trufla brúðkaup, en ef upplýsingarnar voru réttar yrði kannski annað morð framið í kvöld.
Kannski yrði Ivy Beckett myrt.
Kannski öll fjölskyldan og systir hans líka því þau yrðu undir sama þaki við athöfnina sem átti að fara fram á morgun.
Theo vildi alls ekki að það sama gerðist, sem hafði gerst fyrir 10 árum, þegar tvær manneskjur voru myrtar. Hann fékk hnút í magann við það eitt að hugsa um þetta og gamlar minningar rifjuðust upp. Hann varð samt að bægja þeim frá sér, annars myndi hann missa einbeitinguna.
Hann hafði komið nógu illa fram áður og þurfti ekki að bæta við það.
Theo tók síðustu beygjuna að búgarðinum og sá skreytingarnar á girðingunum, bláa satínborða sem blöktu í maígolunni. Engir vinnumenn voru sjáanlegir og enginn morðingi heldur en hann gæti verið hérna, tilbúinn til að ráðast til atlögu.
Síminn hringdi og hann sá nafnið á skjánum. Wesley Sanford, félagi hans í lögreglunni sem hafði látið Theo vita af því að morðingi gæti verið á leiðinni á búgarðinn. Theo hélt athyglinni við veginn og umhverfið en ýtti á takkann til að stilla símtalið á hátalarann.
–Er eitthvað að frétta? spurði Wesley strax.
–Nei, ekki ennþá, en hjá þér?
–Ég verð kominn á lögreglustöðinaEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Skuggar fortíðar
Smith&Wesson byssuna sína og mjakaði sér nær staðnum þar sem hann hafði skilið hana eftir til að deyja.
Það voru engin ummerki á staðnum lengur.
Tæp 10 ár voru liðin og skógurinn hafði endurheimt svæðið. Það leit alls ekki eins napurlega út og var þakið villtum blómum og vínvið.
Engin för eftir manneskju sem var dregin eftir jörðinni, ekkert blóð.
Árin höfðu þvegið þetta allt í burtu en Jodi sá það, fann lyktina af því, meira að segja bragðið, eins og nú væri sjóðheit nótt í júlímánuði eins og þegar morðinginn var næstum búinn að ganga frá henni.
Húsið skammt frá var niðurnítt.
Hún hafði ekki átt von á að finna aðra tilfinningu en þá að þetta væri svæði þar sem morð hafði verið framið, þar sem tvær manneskjur höfðu verið myrtar.
Hún lagaði takið um byssuna þegar hún heyrði fótatak. Ekki hratt fótatak en gesturinn var ekki heldur að reyna að læðast að henni.
Jodi hafði hlustað eftir öllu sem gæti orðið henni að bana.
Endanlega í þetta skipti.
Hún sneri sér snöggt við, til öryggis ef það væri ekki rétt hjá henni hver var að koma, og miðaði.
–Þú hefðir ekki átt að koma hingað. Röddin var djúp og hás, blanda af ákveðinni rödd lögreglumanns og Texasframburði.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Hildarleikur
Hailey Darrow er horfin.
Lucas hafði brunað á spítalann til að sjá það með eigin augum. Og nú hafði hann séð, svo ekki varð um villst, að rúmið hennar var tómt.
–Hvernig í fjáranum gat þetta gerst? spurði Lucas.
–Hef ekki hugmynd, svaraði Parton og klóraði sér í hálfsköllóttum kollinum. –Ég er búinn að spyrja allt starfsfólkið, en enginn veit neitt. Hailey hlýtur að hafa fengið hjálp.
Hún hefði ekki getað staðið upp og komist út ein síns liðs.
Nei, tæplega. Hún hafði legið í dái í þrjá mánuði. Hún hefði ekki getað staðið hjálparlaust, hvað þá gengið og farið af sjúkrahúsinu.
Ýmsar spurningar brunnu á Lucasi. Hafði Hailey talið einhvern á að hjálpa sér að fara þegar hún vaknaði? Það var hugsanlegt. Síðast þegar Lucas sá Hailey með rænu hafði hún verið næstum fullgengin með barn þeirra
og á flótta. Ekki bara frá náunganum, sem elti hana, heldur líka frá honum.
Að lokum hafði hann fundið hana, meðvitundarlausa í bílflaki. Hún hafði ekið á tré og grein stungist gegnum framrúðuna og veitt Hailey slæman höfuðáverka. Hún hafði einnig verið með fölsuð skilríki og svo mikið reiðufé að ljóst var að hún hafði ætlað sér að stinga af.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Ógn framtíðar
Drury stöðvaði bílinn, dró upp byssuna og reyndi að sjá náungann í gegnum myrkrið og regnið. Ekkert sást. En Drury vissi að hann var þarna.
–Ég er Drury Ryland, lögreglufulltrúi, kallaði hann. –Gakktu fram svo að ég geti séð þig.
Það gerði náunginn ekki, heldur hleypti hann af einu skoti. Áður en Drury gat brugðist við hafði kúlan hæft framrúðuna.
Næstu tvö skot fóru beint í bílvélina. Annað þeirra hlaut að hafa hitt vatnskassann, þar sem gufa tók að stíga upp í loftið.
Drury bölvaði. Þar fór útgönguleiðin. Ef hann hefði viljað flýja, sem hann gerði ekki. Hann vildi finna þennan hálfvita og láta hann borga fyrir stofna til skotbardaga á landareign sinni.
Þar sem skothljóðin höfðu eflaust vakið frændfólk hans og bræður sendi Drury fljótleg textaskilaboð til eins af frændum sínum, Grayson Ryland lögreglustjóra, og bað um hjálp. Hins vegar vonaði Drury að hann myndi klára málið löngu áður en
hjálpin myndi berast.
Drury reif upp bílhurðina og notaði hana til að skýla sér á meðan hann miðaði á skuggaveruna, sem gægðist annað veifið fyrir hornið á bílskúrnum.
Hann varð að ná góðu skoti, því að Drury vildi ekki að skotið endurkastaðist og hitti hugsanlega vinnumann á búgarðinum eða einhvern í nálægum húsum.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Barnsránið
Eitthvað var öðruvísi en það átti að vera.
Holden Ryland, lögreglumaður í bandarísku alríkislögreglunni, þurfti ekki að treysta innsæi sínu sem lögreglumaður til að vita það. Það var dimmt í húsinu að undanskildu einu daufu ljósi í stofunni. Eigandinn, Nicky Hart, þoldi ekki myrkur og þegar hún var heima voru yfirleitt öll ljós kveikt.
Annað hvort hafði hún ætlað að sleppa spjallinu þeirra eða... Holden ákvað að halda sig við þá skýringu því hún var skárri en hin.
Það var ástæða fyrir því að þau þurftu að tala saman.
Ekki góð ástæða.
Holden lagði höndina á byssuna í hulstrinu og steig út úr bílnum. Hann var kominn nokkur skref þegar hvíta kisan hennar kom þjótandi undan veröndinni. Hún kom beint til hans, vafði sig um fæturna á honum og mjálmaði.
Annað merki um að eitthvað var að.
Nicky hleypti kettinum aldrei út.
Var Nicky þá inni? Ef hún var inni, hafði þá eitthvað komið fyrir hana? Holden blótaði sjálfum sér fyrir að hafa ekki laumast að húsinu. Þá hefði hann lagt lengra í burtu, læðst meðfram húsinu og litið inn um glugga. Ná grannarnir hefðu kannski séð það en það var betra en sumt af því sem honum datt í hug núna. Hann hafði ekki gripið til þessarar var úðarráðstöfunar af því að hann hafði ekki reiknað með að lenda í vandræðum.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Heimaslóðir
Ekki síst ef haft var í huga hvernig og hvers vegna Emmett hafði dáið.
Landon vissi hvernig hann hafði verið myrtur, en ástæðan olli því að hann lá oft andvaka á nóttunni. Morðinginn skyldi hins vegar fá að þola ýmislegt verra en andvökunætur, svo mikið var víst.
Hann horfði út undan sér á einhvern sem nálgaðist hann. Svipurinn á Landon var ekki beinlínis vingjarnlegur, svo að fólk hafði haldið sig í hæfilegri fjarlægð... þar til nú.
Hann var á varðbergi og taugaspenntur svo að hann tók um byssuskeftið, en ekki reyndist þörf á að grípa til vopna. Maðurinn var Grayson Ryland, lögreglustjóri og frændi Landons.
En Grayson var líka nýi yfirmaðurinn hans Rylands.
Blekið var varla þornað á samningi Landons við lögreglustjóraembættið, en hann var nýjasti vörður laganna í Silver Creek. Hann var sömuleiðis nýjasti íbúi Silver Creek-búgarðsins og dvaldist í gestabústaðnum þar til hann fyndi hentuga íbúð. Landon hefði gjarnan viljað að hann hefði komið heim undir betri og skemmtilegri kringumstæðum.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr.