Flýtilyklar
Brauðmolar
Ástarsögur
-
Fullkomin áætlun
Tucker MacKinnon tók krappar beygjurnar á Whisper-fjalli á háskalegum hraða. Þetta var dæmigerður júnímorgunn í SuðurKarólínu, sólin var heit og rakinn hræðilegur. Skap hans var eins. Allir í MacKinnon-fjölskyldunni gátu staðfest að Tucker átti oft erfitt með skap sitt. Gott var að leita til hans ef skýstrókur var á leiðinni. Hann hafði átt við skröltorma og svartbirni.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Paradís
Reily Eckardt sat í aftursæti lögreglubílsins, sveitt í lófunum og titrandi af hræðslu. Hendur hennar skulfu og hún var mjög miður sín. Eftir að hún lagði af stað frá Montana fyrir þremur dögum hafði allt gengið á afturfótunum, en þetta var verra en allt annað. Hún var allslaus á ókunnugum stað einhvers staðar í Colorado. Fljótlega eftir að hún lagði af stað hafði lögreglan stöðvað hana fyrir of hraðan akstur við fylkismörk Wyoming.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Æskudraumar
Kæra Dagbók, Það er opinbert: Ég er ÁSTFANGIN. Lesley og ég fórum í apótekið eftir skóla til að kaupa ís í rótar bjór af því að það var svo rosalega heitt úti og líka af því að mig langaði til að sjá DEAN. Len ljóti, sem hékk við gosvélina, eins og alltaf, sagði. –Þú ættir kannski að hafa rótarbjórinn sykur lausan, Gabby gorvömb.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Alveg óvænt
Hann er slökkviliðsmaður. –Getur ekki verið. Danskennari. Sérhæfir sig í argentískum tangó. –Góða. Buxurnar hans eru ekki nógu þröngar og hann er ekki nógu góður með sig. Hann er með fallegar hendur. Ég skal veðja að hann er skurðlæknir. Rosemary Jeffers brosti yfir martiniglasið sitt meðan bestu vinkonurnar þrjár skeggræddu um manninn við barinn hægra megin við hana. Hún sneri sér ekki við til að horfa.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Hentibrúðkaup kúrekans
Will tautaði undan sænginni. –Fyrirgefðu, mamma. Jeminn. Eftir að hafa hvesst augun á þá aðeins lengur lyfti hún þunnri sænginni upp og breiddi ullarteppið yfir litlu líkamana. –Svo er þetta engin keppni. Þið eruð báðir litlir strákapinnar. Ég verð að ylja ykkur strax, annars finn ég bara tvö grýlukerti í rúminu í fyrramálið. Hún byrjaði að breiða yfir þá með ýktum tilburðum svo þeir gátu ekki annað en flissað.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Verðandi brúður
Læsið konurnar inni og athugið skotbirgðirnar, herramenn. Cain Paxton er kominn aftur í bæinn! Sólin var ekki enn risin upp fyrir toppa trjánna sem voru hér og þar í bænum Almost, Montana, en Merritt Miller hafði þegar heyrt þessa viðvörun í ólíkum útgáfum fjórum sinnum síðan fyrsti viðskiptavinurinn hafði komið inn á Alvie‘s Café rétt eftir sex. Eftir aðra viðvörunina hafði Merritt farið og spurt Alvie Crisp sjálfa um málið þar sem eldri konan vann
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Þyrluslysið
Það fyrsta sem Sam tók eftir hjá henni var óttinn í augnaráðinu. Jæja, kannski ekki það fyrsta. Ef hann var heiðarlegur við sjálfan sig sá hann fyrst að augun voru tælandi. Það er að segja, ef hægt er að lýsa augum sem tælandi. Jú, augum hennar, ákvað hann. Ekki spurning. Stór augu, umkringd dökkum augnhárum, skærgræn á litinn. En já, núna lýstu þau ótta.
Verð á rafbók -
Efni í eiginkonu
Callie Jones þekkti vandræði þegar hún rakst á þau. Og þrettán ára stelpan sem stóð ákveðin fyrir framan hana leit út fyrir að vera meiri vandræði en hún kærði sig um á laugardagsmorgni. Fyrir það fyrsta vildi Callie sofa út um helgar og táningsstúlkan með ögrandi andlitssvipinn hafði barið að dyrum hjá henni klukkan sex að morgni. Svo var stelpan ekkert lík því sem hún hafði ímyndað sér.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Hættustig fimm
Hún náði ekki andanum. Grace Anderson tók andköf undir grímunni. Sprengingin var svo öflug að þau þeyttust yfir herbergið og lentu á stiga sem var orðinn ótraustur og hrundi undan þyngd þeirra. Þau lágu í miðju eldsins, reykurinn var svo þykkur að Grace sá varla í kringum sig. Hugurinn reyndi að fá hana til að gera eitthvað.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Á heimaslóðum
Angelo Tucker mundi sögur sem afi hans hafði sagt honum um það hvernig ættflokkurinn var vanur að ganga á höndum og veiða með fótunum í Hohánni þangað til skaparinn kom og sýndi þeim betri aðferð. Hann og Waylon, yngri bróðir hans, voru vanir að hlæja við tilhugsunina um að veiða fisk með tánum.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr.