Flýtilyklar
Brauðmolar
Ástarsögur
-
Tækifærið
Harðasti auðkýfingurinn í Texas. Þannig hafði tilvonandi vinnuveitanda Melanie Grandy verið lýst í svo að segja öllum blaðagreinum sem hún hafði lesið á Netinu áður en hún kom í stutta ferð hingað. Málið var að í greinunum hafði Zane Foley einnig virst vera nokkuð dularfullur maður sem talaði aldrei um einkalíf sitt í fjölmiðlunum, jafnvel þótt allt annað í lífi hans væri auglýst almenningi.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Aðeins ein leið fær
Hope Alessandro Harrell var nýbúin að fá sér sæti í bás bakatil á Cedar Grove Bar og fékk nákvæmlega þau viðbrögð frá unnusta sínum, Will Nichols, sem hún hafði búist við. Blá augu hans stækkuðu svo kastaði hann ljóshærðu höfðinu aftur og glotti
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Ævintýri í Vegas
Ja, hún hefur annaðhvort gleymt eigin aldri eða þykist vera fimm árum yngri en hún er til að ganga í augun á karlmanni. Segðu mér að við eigum ekki eftir að kæra okkur um að ganga í augun á karlmönnum þegar við verðum áttatíu og eins árs. Hver kærir sig um svoleiðis á þeim aldri, hvort sem er? Þeir hljóta að vera til heilmikilla vandræða á níræðisaldri.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Hjartans mál
Madeline Sullivan læddist í tunglsljósinu út úr risíbúðinni sinni. Hún fór gætilega niður stigann og yfir gólfið sem var svo gamalt að það brakaði jafnvel undan rykinu sem féll á það en þó náði hún ekki að vekja gestina á gistikránni. Bíllinn hennar fór í gang í fyrstu tilraun og hún mætti engum bíl fyrr en hún kom að fyrsta aldingarðinum vestan megin í bænum.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Verndarengillinn
Það tók Jonathan Taylor nokkra stund að átta sig á því að hljóðið sem hann heyrði var ekki hluti af martröð næturinnar. Einhver var að berja að dyrum. Hann leit á klukkuna á náttborðinu og sá að hún var þrjú að nóttu til. Hann bölvaði, svipti af sér sænginni og greip byssuna. Heimsókn á þessum tíma nætur boðaði aldrei neitt gott.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Sú eina rétta
Hún er svo lítil. Skilur hann ekki að stærðin skiptir máli? Hvað ef hann nær henni ekki upp? Hvað á ég þá að gera? Alexandra Tulane kyngdi taugaóstyrk og kreisti fram bros á meðan hún velti fyrir sér hvernig væri best að taka á málunum. Fara um borð, loka augunum og vona það besta? Eða fara rólega í sakirnar?
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Vegir fortíðar
Hún vissi alltaf að fullkomna systirin hennar myndi verða fullkomin eiginkona, sem bjó í fullkomnu húsi í fullkomnu sveitaþorpi. Jafnvel bíllinn hennar var fullkominn. Fullkomið, hvíslaði Megan Rose. Fingur hennar krepptust um stýrið. Megan hafði aldrei verið í góðu sambandi við systur sína. Jenn hugsaði áður en hún framkvæmdi, en Megan var vön að framkvæma áður en hún hugsaði.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Týndar slóðir
Shelby Brooks greip andann á lofti og virti fyrir sér rándýru, ítölsku leðurskóna, sem hún hafði eyðilagt. Hún vissi betur en að eyða lágum laununum í merkjavöru þegar hægt var að fá jafngóðar eftirlíkingar. En Luke Tulane hafði alist upp við allsnægtir og vissi greinilega ekki að konur vildu ekki láta sjá sig með manni, sem hafði efni á betri skóm en þær. Fyrirgefðu, muldraði hún lágt.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Fjölskyldubönd
–Falsaðirðu undirskriftina mína? Þú ert aðeins átta ára gamall! Nick Tulane horfði agndofa á son sinn. Honum fannst eins og sagan væri að endurtaka sig, vegna þess að hann hafði svo oft setið andspænis föður sínum á meðan hann beið eftir ákúrunum
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Eiginmaðurinn sem hvarf
Melaine stóð í efstu tröppunni við húsið sitt í Atlanta, Georgíu og skildi ekki hvernig nokkur kona með réttu ráði gat gengið í sokkabuxum í þessum júníhita. Af hávöxnu, svörtu konunni sem hafði hringt dyrabjöllunni hjá henni lagði daufa reykingalykt og hún leit út eins og hún væri í reykingaþörf.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr.