Flýtilyklar
Brauðmolar
Ástarsögur
-
Knapinn
–Þetta er stórslys, vældi hin verðandi brúður. –Ég skil ekki hvernig þú getur verið svona róleg, Juliette. Þetta er allt þér
að kenna.
Juliette Lowell beit á jaxlinn og stóðst þá freistingu að útskýra fyrir Taböthu Jones, brúði dagsins, að kreppa hennar
væri ósköp lítilvæg í samanburði við þær hremmingar sem fátækt fólk um allan heim horfðist í augu við á hverjum
degi. Vissulega voru það vonbrigði að handmáluðu, ljósfjólubláu skórnir voru ofurlítið ljósari á litinn en kjólar
brúðarmeyjanna. En ekki var um stórslys að ræða eins og brúðurin hélt fram.
–Þú verður að kippa þessu í liðinn.
Rödd Taböthu hækkaði um þrjár áttundir. Tár lak niður á kinnbeinið og skildi eftir sig rönd í andlitsfarðanum.
–Þetta er algerlega óviðunandi. Brúðkaupið er eftir mánuð og ég þarf að fá vissu mína fyrir því að þú lagir þetta.
Andardráttur Taböthu var grunnur og stuttur. Hún stóð á miðju gólfinu í brúðkaupshlöðu Campbells, þar sem athöfnin og veislan áttu að fara fram, og hvessti augun á Juliette.
Hún færi ábyggilega að ofanda innan tíðar.
–Dragðu andann djúpt, Tabatha, sagði Juliette. Um leið og hún sleppti orðinu iðraðist hún þess að hafa sagt þetta.
–Ekki segja mér hvernig ég á að anda, hvæsti Tabatha.
–Lagaðu þetta bara.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Huldusteinn
Maí 2017.
–Ég veit að ég hefði átt að hringja á undan mér, sagði Lucy Campbell þegar Zane Phillips opnaði útidyrnar hjá sér. –En
ég kem færandi hendi.
Zane stóð í dyrunum, hávaxinn og herðabreiður, og fyllti næstum upp í gættina. Hann var úrillur að sjá og virti gjafir
hennar þögull fyrir sér.
–Ég kom með nokkrar John Hughes-bíómyndir, sagði hún og rétti honum hvern mynddiskinn á fætur öðrum um leið og hún las titlana. Hann hleypti brúnum og tók svo upp þann efsta.
–Þetta er vandamál, sagði hann og horfði á hulstrið eins og hann vissi ekki hvað hann ætti að gera við það. –Ég er
ekki í skapi fyrir þetta.
–Þess vegna kom ég með svona margar myndir. Ef þú ert ekki í skapi fyrir þessa mynd horfum við bara á einhverja
aðra.
Hann hristi höfuðið. –Nei, Lucy, þú skilur ekki. Ég er ekki í skapi til að tala við fólk. Punktur. Mig langar ekki í
félagsskap í kvöld.
–Ég skil þig betur en þú heldur. Þess vegna kom ég með myndirnarEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Hefðardaman
Lafði Chelsea Ashford Alden horfði varkár um öxl þegar hún gekk að dyrum litla, gráa steinhússins.
Húsið var dimmt og ógnvekjandi, kalt og fráhrindandi. Það var eins og það vildi ekki verða vinur hennar. Það var í hrópandi mótsögn við hina líflegu Juliette Lowell, sem verið hafði herbergisfélagi hennar í háskólanum. Erfitt var að ímynda sér að Juliette ætti heima þarna. En í myrkrinu sá Chelsea þó númerið á húsinu og það var hið sama og vinkona hennar hafði látið hana fá.
Mjó ræman á tunglinu á svörtum Texashimninum var ekki vinkona hennar heldur. Hún dugði ekki einu sinni til að lýsa
upp pallinn. En kannski var myrkrið helsti bandamaður hennar.
Það veitti henni skjól og faldi hana fyrir ófreskjunni sem hafði rekið hana á flótta alla leið til Juliette.
Líf dóttur jarlsins af Downing bauð hvorki upp á frjálsræði né fyrirgefningu. Stundum fannst henni sem fólk horfði bara á og biði eftir falli hennar. Þegar hún féll ekki leituðu menn að tækifærum til að gera henni lífið leitt eða bregða fyrir hana fæti.
Þess vegna var hún komin til Texas.
Hún var orðin þreytt á sviðsljósinu, sýndarmennskunni og uppgerðinni, fólki sem notfærði sér hana og bresku slúðurmiðlunum sem eltu hana hvert fótmál. Ljósmyndararnir gátu staðfest það sem þeim sýndist. Þeir skálduðu sögur eða borguðuEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Kostaboð
Hún vildi ekki kvöldmat. Hún vildi fá stuðning hans við áform sín um að kaupa sér svolítið sæði.
Mallory Harris var spenntari en hún hafði verið lengi. Hún reyndi að róa sig meðan hún beið eftir Braden á fína veitingastaðnum sem hann hafði valið fyrir fund þeirra. Fundurinn var haldinn að hans ósk.
Hún horfði út um gluggann yfir höfnina og allt fólkið sem vappaði um á þilförum skemmtiferðaskips sem var nýlagst að
bryggju. Svo virti hún fyrir sér bleikan himininn, sem sólin skreytti fagurlega áður en hún hyrfi og héldi sig til hlés til
morguns.
Hún ákvað að panta sér glas af góðu víni. Braden myndi gera ráð fyrir að hún gerði það og ekki vildi hún að hann lyfti brúnum fyrr en hún hafði borið upp erindi sitt.
Það sakaði heldur ekki að fá ofurlítinn, fljótandi skammt af hugrekki þó að hún væri ekki vön að leita að styrk annars staðar en hjá sjálfri sér. Og stundum hjá Braden. Þó að þau fyrrverandi hjónin væru ekki náin lengur treysti hún enn dómgreind hans að flestu leyti varðandi það sem ekki tengdist tilfinningum.
Hann hafði haft ástæðu til að bjóða henni út að borða. Þó að þau snæddu saman nokkuð reglulega var það aldrei bara til þess að gæða sér á ljúffengum mat. Þau þurftu oft að ræða saman um ýmsa hluti og hittust þá yfir kvöldverði.
Hún afréð að velta því ekki fyrir sér hvers vegna Braden hefði kallað hana til fundar við sig í þetta sinn. Það þýddi ekki neitt.
Það vissi hún af reynslunni. Eftir að þau skildu fyrir þremur árum og tóku upp vináttu í stað hjónalífs höfðu þau bæði fundið takt sem báðum fannst nokkuð þægilegur. Það áleit Mallory að minnsta kosti.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Dýrasta djásnið
–Kæru ástvinir. Við erum saman komin hér í dag til þess að leggja Alönu Gold Collins til hinstu hvílu.
Athöfnin hafði verið heimskuleg hugmynd.
Flint Collins spennti greipar á kviðnum á sér og starði niður eftir svörtu buxunum á gljáandi fínu, svörtu skóna sína. Alana Gold. En háfleygt nafn. Næstum eins og á kvikmyndastjörnu.
Alana Gold. Fátt í lífi móður hans hafði minnt á gull. Nema hárið, kannski, þegar hún var ung og sæt. Áður en lífsins ólgusjór, eiturlyfin og fangelsin höfðu hneppt hana í þrældóm.
–Himnafaðirinn segir okkur að allt muni breytast þegar klukkan glymur.
Vel gat hugsast að himnafaðirinn hefði sagt það. Biblían gerði það að minnsta kosti, að sögn sálnahirðisins sem hafði verið fenginn til að jarðsyngja móður hans. Kæru ástvinir, hafði hann sagt. Það var Flint.
Hann var ástvinurinn. Sá eini.
Hann hafði aldrei átt neinn annan að. Hann vissi ekki einu sinni hver faðir hans var.
Hann heyrði fótatak fyrir aftan sig og stífnaði upp. Hann hafði beðið hana um að koma. Félagsráðgjafann. Til að láta skiptin fara fram.
Kæru ástvinir. Á sinn hátt hafði Alana unnað Flint heitt. Hún hafði án efa líka elskað „arfleifðina“ sem hún hafði skilið eftir handa honum. Þá sem hann hafði ekki vitað um og hafði ekki séð enn. Þá sem var fyrir aftan hann núna.
–Látið huggast, sagði presturinn. Flint leit á samúðarfulla, roskna manninn og gat fyrir sitt litla líf ekki munað hvað hann hét.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Sonarhvarfið
Girnileg.
Johnny Brubaker klemmdi aftur augun og opnaði þau ekki fyrr en hann var viss um að sjá ekkert annað en pappaskálarnar sem þöktu bekkinn í matarbílnum.
Hann leit á seðlana sem héngu á snúrunni fyrir ofan töfluna.
Hann jós hrísgrjónum, svörtum baunum og grænum og lauk í skál og bætti síðan við blaðsalati og sinni frægu salatsósu. Hann lokaði skálinni, festi seðilinn á hana og sneri sér að þeirri næstu. Þar var beðið um nautakjöt og síðan kom ein með svínakjöti. Það tók hann aðeins tæpa mínútu að útbúa skálarnar þrjár og hann gætti þess að láta augun ekki hvarfla annað á meðan.
Það gekk ágætlega þangað til kona nokkur við afgreiðslugluggann á bílnum hans, Englafæði, lagði spurningu fyrir konuna sem tók við pöntununum.
–Johnny?
Tabitha Jones, hjúkrunarfræðingurinn sem aðstoðaði hann á frídögum sínum, kallaði á hann og auðvitað leit hann ósjálfrátt á hana.
Þarna var þessi yndislegi bakhluti aftur. Hvernig stóð á því að hann hafði fríkkað svona frá í gær? Í hálft ár höfðu þau
unnið saman þarna. Þau höfðu verið nágrannar í níu mánuði og orðið góðir vinir. Var hann allt í einu að taka eftir henni á þennan hátt núna?
–Já?
Hann sneri sér aftur að skálunum og fann að karlmaðurinn við lúguna horfði á hann, en honum var hjartanlega sama. Bíllinn hafði staðið á götu við ströndina í San Diegó í rúma þrjár stundir og allan þann tíma höfðu viðskiptavinir verið að glápa á hann inn um lúguna.
–Heilbrigðisfulltrúinn spyr hvort hann megi koma inn, sagði Tabitha hikandi.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Hjartaknúsarinn
–Mikið ertu falleg. Þetta rauða hár, grænu augun, stórkostlegur kroppurinn og varir sem voru skapaðar til að kyssa. Má ég segja þér leyndarmál?
Svar Nell var einfalt. –Nei.
En myndarlegi maðurinn í dýru jakkafötunum var ekki að hlusta. Hann hallaði sér fram svo að Nell fann glöggt viskílyktina út úr honum. Hann var ekki drukkinn, bara nógu kenndur til að vera ýtinn.
–Ég er yfirleitt ekki hrifinn af konum með húðflúr, sagði hann og virti fyrir sér flúrið sem þakti upphandlegginn á henni.
–En í þínu tilviki geri ég undantekningu. Helst vildi ég fara upp á þig strax, bara hérna á barnum.
Nell velti því fyrir sér hvort hún ætti að nenna að móðgast, en ákvað að sleppa því. Hún hafði aldrei haft neitt á móti
hreinskilni. En því miður vakti þessi náungi ekki áhuga hennar.
Fáir karlmenn gerðu það.
Bara einn, frómt frá sagt.
Sá maður birtist hreinlega alls staðar þessa dagana, hvar sem hún átti leið um. Hún ætlaði ekki að leyfa honum að koma nálægt sér framar.
Hún hafði líka fengið nóg af myndarlega náunganum í fínu jakkafötunum. Honum var ekki bara lífsins ómögulegt að skilja vísbendingar og sneiðar, heldur fékk hann hana til að hugsa um eina manninn sem hún kærði sig ekki um að hafa neitt samanEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Fjallabrúðurin
Þegar brúðurin skjögraði inn í bjarmann frá varðeldinum við bústaðinn, illa á sig komin, sat Garrett Bravo fyrir utan afskekkta griðastaðinn sinn og ristaði sér pylsu á teini.
Eitt andartak hélt Garrett að hann sæi ofsjónir.
En hvernig mátti það vera? Hann hafði aldrei fyrr séð neitt sem ekki var raunverulegt. Og hann hafði ekki drukkið nema tvo bjóra.
Japli, ástralski fjárhundurinn hans, gaf frá sér hvellt væl af undrun.
–Kyrr, Japli.
Hann leit hvass á hundinn, sem skalf og mændi á svipinn hinum megin við varðeldinn.
Garrett leit upp á ný. Hún var þarna enn.
Hann opnaði munnin og hugðist tala, en orðin vildu ekki koma.
Að lokum spratt hann á fætur og gaf frá sér fáránlegt óp, ringlaður og vantrúaður. Við þessa snöggu hreyfingu datt pylsan af teininum og á jörðina. Hann gapti á hana, en Japli horfði vongóður á húsbónda sinn. Þegar Garrett bannaði honum ekki að éta pylsuna beið hvutti ekki boðanna og sporðrenndi henni í snatri.
–Æ, sagði hvítklædda tötrughypjan, gekk í átt að eldinum og veifaði. Höndin var mjög óhrein. –Það er óþarfi að standa upp.
Þetta er verra en það lítur út fyrir að vera, skal ég segja þér.
Þetta leit svo sannarlega ekki vel út í hans augum. Laufi prýdda hárið, sem einu sinni hafði verið vel og snyrtilega greitt, og ljótar skrámur og marblettir sáust á berum öxlunum og handleggjunum.
Vinstra auga vesalings konunnar var fjólublátt og svo bólgið að hún gat ekki opnað það. Hvíti kjóllinn var rifinn, tættur og forugur. Hann var í svipuðu ásigkomulagi og eigandinn.
–Hamingjan góða, stundi hann. –Er allt í lagi með þig?Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Bróðurdóttirin
Kallaðu mig Caroline, sagði hún, krosslagði granna fæturna og spennti greipar á hnénu.
–Gott og vel, Caroline. Klukkan hvað sagðirðu að uppboðið ætti að fara fram?
–Við ætlum að hafa dagskrá allan daginn í almenningsgarðinum. En þú þyrftir bara að vera þar frá tvö til fjögur,
svona á að giska.
–Frá tvö til fjögur, endurtók hann, þóttist verða hugsi og lét sem hann langaði mjög til að geta orðið henni að liði. Hann
langaði svo sem til þess, en bara ekki á þessu sviði.
Caroline brosti sínu breiðasta og horfði á hann gegnum kisugleraugun sín. –Jæja. Við getum þá bókað þig sem einn af
piparsveinunum okkar. Mikið er ég glöð.
–Heyrðu, hinkraðu nú aðeins, góða, ég þarf að athuga málið.
Hann skrunaði niður skjáinn með músinni og þóttist vera niðursokkinn í það sem hann sá.
–Því miður er ég upptekinn milli klukkan tvö og fjögur.
Það var haugalygi og Seth var illa við að segja ósatt. En til að komast hjá því að standa uppi á sviði eins og verðlaunanaut var hann tilbúinn að grípa til örþrifaráða.
–Ég kem þessu ekki við, því miður.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Hjartað ræður
Hann var frábær við telpurnar. Á því hafði Ava ekki átt von. Þau höfðu þekkst síðan í miðskóla og hann var mikið kvennagull. Hins vegar hafði hann aldrei fest ráð sitt og Ava því talið víst að börn vektu ekki áhuga hans.
En einhvern veginn hafði hann látið tilleiðast að aðstoða ljósálfana við jólaverkefnið. Á undanförnum sex vikum hafði
hann haft umsjón með stúlkunum meðan þær settu saman fimm dúkkuhús, máluðu þau og innréttuðu. Húsin yrðu gefin fimm góðgerðarsamtökum í bænum. Darius hafði að mestu unnið verkið en honum hafði tekist að fá telpurnar til að aðstoða sig á mjög uppbyggilegan hátt.
Jamm og já. Darius var kynþokkafullur og heillandi og hann náði vel til barna. Sylvie dáði hann. Það með kunni Ava
enn betur við hann en ella og daðrið í honum, hvort sem það var með orðum eða augnaráði, hafði meiri áhrif á hana.
Lengi hafði hún talið að henni fyndist hann ekki jafn freistandi og í miðskólanum forðum. Nú óttaðist hún að hún væri
að verða pínulítið skotin í honum í annað sinn. Hún var meira að segja stundum með óra um hann.
Eða jafnvel bálskotin.
Og hvað með það? Hún þurfti á órunum sínum að halda.
Hún hafði ekki úr öðru að moða þegar um rómantík, ástríður og kynlíf var að ræða.
Nei, hún vorkenndi sér ekkert þó að hún væri karlmannslaus. Övu langaði ekki vitund í annað samband. Hún hafði
elskað Craig Malloy og misst hann. Það eina sem hún átti eftir voru minningarnar, samanbrotni fáninn og orðurnar. SexEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr.