Flýtilyklar
Brauðmolar
Ást og afbrot
-
Barnið fundið
Þegar sársaukinn leið hjá, sneri Elise höfðinu og leit á mynd úr ómsjá, mynd af dóttur sinni sem var límd við grind rúmsins. Myndina hafði hún haft í veskinu sínu síðustu vikurnar og hafði einbeitt sér að henni í gegnum fæðinguna. Reyndar hafði hún einbeitt sér að dóttur sinni síðustu níu mánuðina. Lengur. Hún hafði undirbúið komu barnsins, sparað peninga og beðið fyrir þessum degi árum saman.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Grafnar minningar
Af hverju var hann ekki dáinn? Nick starði upp á hvítt loft sjúkrastofunnar og píp hjartaritans undirstrikaði skelfinguna í huga hans. Af hverju höfðu þeir ekki drepið hann? Af hverju hafði honum verið haldið í fimm ár... í flutningagámi, á gámaskipi, á siglingu um alþjóðleg hafsvæði? Og af hverju gat hann ekki munað eftir því sem gerðist rétt áður en honum var rænt?
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Laundóttir hermannsins
Jagger Holtz hnipraði sig saman í myrkrinu þegar þyrlan þaut í burtu, líklega til að halda áfram að fylgjast með umferðarteppum á hraðbrautunum á jörðu niðri. Þeir höfðu sveimað yfir AbaCo byggingunni í tuttugu og átta sekúndur. Rétt nógu lengi til að hann gæti rennt sér á línu niður á þak tuttugu hæða háa stál- og glerturnsins, en vonandi ekki nógu lengi til að setja öflugt öryggiskerfi AbaCo Inc., eitt af stærstu... og vafasömustu... skipafélögum veraldar, í gang.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Í dulargerfi
Það tók hana augnablik að átta sig á því að andvarpið sem bergmálaði í litla svefnherberginu sem þjónaði hlutverki skrifstofu kom frá henni sjálfri. Eve Walters dýralæknir var niðursokkin í hugsanir um fortíðina og annars hugar og hafði haldið að þessa, þýski fjárhundurinn sem hún bjargaði frá grimmum eiganda tæpum tveimur árum áður, hefði verið að andvarpa. Það kom fyrir að Tessa, sem lá þessa stundina undir skrifborðinu hennar, andvarpaði eins og manneskja.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Tvíburar kúrekans
Melissa Monroe gat ekki annað en velt fyrir sér hvort hún væri að gera mikil mistök. Hún ók eftir veginum í Texas og fannst hún upplifa „déja vu“. Auður þjóðvegurinn, snjórinn sem féll frá himnum og jólalögin í útvarpinu vöktu upp minningar um þegar hún hafði keyrt þarna síðast. Það var rétt rúmt ár síðan. En þá hafði snjórinn ekki fallið rólega og fallega heldur hafði verið bylur sem neyddi hana loks til að stansa.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Vaknað til lísfins
Þetta hafði verið dæmigerður, rólegur dagur á fasteignasölunni. Í yfirstandandi kreppu keypti fólk hvorki eignir né seldi í litla bænum Black Rock, Kansas. Layla West færði fæturna til og frá undir skrifborðinu til að leita að öðrum hælaháa skónum sínum. Ef Layla elskaði eitthvað voru það skór. Hún hafði líka fengið arf sem gerði henni kleift að halda ró sinni þótt hún hefði ekki selt hús í mánuð.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Fógeta fulltrúinn
Það var ekki fyrr en hún sá rauðu ljósin dansa í baksýnisspeglinum að Edie Burnett leit á hraðamælinn. Hún var á rúmlega fimmtíu kílómetra hraða. Þegar hún færði fótinn af bensíngjöfinni og beygði að gangstéttinni í þessari litlu verslunargötu, sá hún skilti sem gaf til kynna að leyfilegur hámarkshraði væri þrjátíu. Hún bölvaði lágt og stöðvaði bílinn
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Að vernda og þjóna
Fjórir litapakkar, hellingur af föndurpappír, tíu límsaukar og nokkrir kassar af servíettum. Portia Perez brosti með sjálfri sér þegar hún stoppaði bílinn við lágvöruverslunina.Bestu vinkonu hennar, Laylu West, myndi finnast það dapurlegt að á listanum var ekki par af rauðum skóm með tíu sentimetra hælum og eitthvað efnislítið og glitrandi en Layla hafði aldrei unnið við að skemmta tólf litlum krökkum í átta tíma á dag.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Barnsránið
Peyton Wilkerson lauk við að skúra eldhúsgólfið, ánægð með gljáandi flísarnar og ilminn af bleikiefninu í loftinu. Hún gekk frá þveglinum og gekk svo að glugga notalega búgarðshússins.Hún starði út, þar sem iðnaðarmennirnir höfðu daginn áður steypt verönd innan við 180 sentímetra háu girðinguna sem afgirti baklóðina. Stoltið fyllti brjóst hennar. Nú var allt að smella saman
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Húsið á fenjasvæðinu
Himinninn var fullur af gráum skýjabólstrum og loftið rakt. Olivia Markham leit kvíðin til himins þegar hún ók inn í Cypriere, Louisiana og sá öll fimm veðurbörðu húsin sem stóðu þar. Hún horfði í báðar áttir eftir götunni og leitaði að lífsmarki. Það yrði fyrsta lífsmarkið sem hún hafði séð í tvo tíma síðan hún ók í áttina að fenjalandinu.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr.