Flýtilyklar
Brauðmolar
Sjúkrasögur
-
Konungborni dýralæknirinn
Skrýtið að sjá þig hér Lovak læknir, sagði Melinda brosandi þegar Dragan lét bílrúðuna síga niður. –Maður gæti haldið að ég hefði sett vaktalistann minn upp eftir þínum. Dragan vissi að hún hafði einmitt gert það þegar hún hringdi í hann eftir að hún var búin að sinna sjúklingum á stofunni um morguninn... en fyrsta vitjunin hans hafði tekið lengri tíma en hann hafði reiknað með sem var ástæðan fyrir því að hann kom að hundahótelinu á sama tíma og þegar hún var að fara... og brosti á móti
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Brúður læknisins
Stöðvaðu bílinn, Mike... strax! Ég missti hann, sagði Maggie hörkulega á meðan viðvörunarpíp heyrðist frá tækinu. Hún bjó sig ósjálfrátt undir það þegar sjúkrabíllinn beygði út í kantinn á holóttum veginum og stöðvaðist, en einbeiting hennar var allan tímann á Walter Dinnis og þeirri staðreynd að hjarta hans sló ekki lengur. Vanar hendur hennar færðust á mitt brjóst hans og hún hóf hjartahnoðið sem lét súrefnisríkt blóð færast til heilans og mikilvægra líffæra. Hún vissi að Mike kæmi til hennar á hverri stundu.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Nýársósk Ítalans
Ég vil skilnað, ég vil skilnað, ég vil skilnað...Amy þuldi orðin í huganum á meðan leigubílstjórinn ók eftir þröngu sveitavegunum sem lágu að ströndinni í norðurhluta Cornwall. Snjórinn sem hafði fallið um nóttina hafði myndað hvíta blæju yfir trjám og runnum og nú glitraði þessi fallega blæja í geislum morgunsólarinnar. Dagurinn virtist ætla að verða fullkominn... fullkominn fyrir fólk sem var ekki í þann veginn að slíta hjónabandi sínu.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Fullkomin gjöf
Þú þekkir mig, læt alltaf plata mig, svaraði hann með letilega, kynþokkafulla brosinu sem fékk blóðið til að hitna í æðum hennar. Einn sjúklinga minna var afar ákveðinn fyrir mína hönd og það hefði verið durtslegt að neita. Auk þess er maturinn frábær, ef ég man rétt. Allt í lagi, hann hafði ekki komið til að hitta hana, en við hverju hafði hún svo sem búist? Tvö ár var langur tími og mjög mikið hafði gerst. Of mikið.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Samruni eða hjónaband
Svona var þá að vera útskúfað. Anna Wilder bar höfuðið hátt, herti takið á haldi skjalatöskunnar og gekk ákveðin framhjá gráhærðu kerlunum tveimur við upplýsingaborðið á Walnut River-sjúkrahúsinu. Hún þurfti ekki að sjá þær til að finna fyrir hvössu augnaráðinu sem fylgdi henni að lyftunni. Hún þurfti ekki heldur að heyra hvískur þeirra almennilega til að vita hvað þær sögðu.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Hinn eini rétti
Þú vinnur með eldri sjúklingum. Er það ekki rétt, ungfrú Suarez? Isobel fannst sem hún hefði verið skoðuð í smásjá síðustu fimm mínúturnar. Neil Kane gat látið hjarta hennar slá örar með því einu að mæta henni á ganginum. Það var ekki staða hans sem rannsakanda fyrir skrifstofu saksóknara í Massachusetts sem hafði áhrifin á hana.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Óvænt ólétta
Simone Garner virti fyrir sér þungunarprófið sem lá á hvíta bekknum í baðherberginu og beið á meðan sekúndur liðu hjá. Hún var þrjátíu og sjö ára gömul og hjúkrunarkona á Walnut River-sjúkrahúsinu, svo hún hefði sannarlega átt að vita betur en að láta eitthvað svona gerast. En... hún hafði látið það gerast og hún gat engan ásakað nema sjálfa sig.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Nýtt hlutverk
Hún myndi grátbiðja, fá lánað, ljúga, svíkja og stela fyrir barnið sitt. Courtney Albright vissi að það sem hún þurfti að gera var ekki jafn slæmt og allt þetta, en fyrir hana var það verra að vissu leyti. Hún þurfti greiða frá manni sem hún hafði enga ástæðu til að treysta. Dr. David Wilder, frábær lýtalæknir, ekkert fyrir fjölskylduna. Líklega var vit í því að maður sem var nógu tómur að innan til að hunsa og vanrækja fólkið sem elskaði hann myndi eyða lífi sínu í að auka fegurð annarra
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Fyrsta ástin
Í eitt andartak skildi hann ekki hvar hann var staddur. Ó, já. Aftur í Walnut River, Massachusetts, heimabæ sínum... og sjúkrahúsinu sem hann hafði fæðst á. Hann stundi þegar minningar um sársaukafulla nótt og slæma drauma komu í huga hans. Hann lá í sjúkrarúmi. Slanga var tengd í æð hans. Hægra hnéð...
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr. -
Fallinn fyrir lækninum
Velkominn í fyrstu bókina í Wilder-ættarsögunni sem fjallar um tvo bræður, tvær systur og sjúkrahús. Fyrst hittum við systkinin við sorglegt tilefni, útför föður þeirra, dr. James Wilder, manns sem var dáður í samfélagi sínu. James var gamaldags læknir og sjúkrahúsið hans,Walnut River-sjúkrahúsið, dró til sín marga frábæra lækna. tveir þeirra eru Peter Wilder og yngri systir hans, Ella.
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK820 kr.